|
|
30.09.2011 12:36:28 / Adriano
Fyrsti leikur KF Adriano í úrslita keppni Carlsbergdeildarinnar. Leikmenn Bombulosur skoruðu fyrsta markið í lok fyrri hálfleiks með skalla eftir aukaspyrnu. Leikmenn Adriano svöruðu með tveimur mörkum í seinni hálfleik. Fyrst var það hlynur eftir frábæran undirbúning Brilla, svo skoraði Ingó eftir undirbúning Ploders. Leikmenn Bombulosar jöfnuðu með ljótu marki. vítaspyrnu keppni staðreynd sem endaði 7-6 en Hjálmurinn klúðraði seinustu spyrnu leiksins.
Byrjunarlið
Helgi GK 7
Óli DC 6 gerði mistök í fyrsta markin
Brilli DC 8 mom spilaði vel og lagði upp jöfnunarmarkið
Hlynur MC 7 Skoraði
Villi ML 6 Klúðraði víti
Ploder MR 6 Hefur oft spilað betur
Ingó FC 7 Fékk úr litlu að moða
Bekkurinn
Sindri MR 6 ágætur
Sverrir ML 6 Alltof grófur
Andri FC 6 Fínn
Jói DC 7 Góður
Dabbi FC 6 Komst ekki í takt við leikinn
Einar MC 6 finn
»
01.09.2011 20:51:07 / Adriano
Liðsmenn Adriano mættu með það eitt í huga að sigra níunda leik sinn í röð og enda riðilinn með fullt hús stiga. Liðið hafði þegar unnið riðilinn og því að litlu öðru að keppa. KF Adriano byrjaði leikinn varfærnislega og lét boltann ganga vel án þess að ná upp góðum sóknarleik. Vörnin var þétt og lokaði vel á stormsenter FC Pump. Um miðjan fyrri hálfleikinn fékk Ingólfur boltann í fætur við vítateiginn með bakið í markið og varnarmann í bakinu. Eins og svo oft áður hélt hann boltanum auðveldlega og lagði svo boltann til hliðar á Hauk sem kom aðvífandi og lagði boltann niðrí í fjærhornið. Undir lok hálfleiksins meiddist Haukur og stuttu seinna fékk Hlynur boltann frá Brynjari fyrir utan vítateiginn, sneri að marki og hamraði boltann í hornið, óverjandi fyrir þunglamalegan markmann Pump. Markið leit út fyrir að vera mjög mikilvægt þegar flautað var til hálfleiks örstuttu seinna. En í seinni hálfleik náði FC Pump betri tökum á leiknum og leikur okkar féll á lægra plan. Framherji FC Pump skoraði 3 mörk án þess að mikið gerðist í leik Adriano. Ingólfur sem hafði neitað að hita vinstri fótinn upp þar sem kvaðst ekki nota hann þurfti svo að nota hann í dauðafæri en skotið arfaslakt...Stuttu seinna lék Hlynur á varnarmann Pump og var kominn í góða skotstöðu en aftur brugðust vinstri fætur og skotið var slakt. Vilhjálmur komst svo í síðasta færi okkar eftir gott þríhyrningaspil var hann kominn í gott en þröngt færi og skotið framhjá. 3-2 tap var því staðreynd, sem þegar upp er staðið skiptir litlu máli en er þó mjög góð uppvakning fyrir liðsmenn KF Adriano. Helgi - 8 - Varði oft mjög vel Brynjar - 7 - Frábær varnarleikur í fyrri hálfleik en hefði mátt gera betur í sumum markana. Óli - 7 - Ágætis leikur, mikil þreyta í honum eftir maraþonhlaup þegar leið á leikinn Hlynur - 7 - Mjög góður fyrri hálfleikur en virkaði uppgefinn í síðari hálfleik þar sem frammistaða hans féll mikið niður, aðallega varnarlega. Villi - 8 - Frábær fyrri hálfleikur, fremstur meðal jafningja í þeim síðari. MOM Haukur - 7 - Sprækur áður en hann meiddist og skoraði gott mark. Ingó - 7 - Sterkur að vanda en hefur átt betri leiki.
Jói - 6 - Átti ágætis innkomu en leikur liðsins var ekki góður meðan hann var inná og því erfitt verkefni. Sverrir - 6 - Komst ekki nægilega vel í takt við leikinn. Sindri - 6 - Barðist vel en þetta var ekki hans dagur, eins og gengur og gerist. Andri - 6 - Fann sig ekki nægjanlega vel gegn sterku liði í nýrri stöðu sem miðjumaður Davíð - 7 - Fín frammistaða
»
10.08.2011 01:42:26 / Adriano
Störe skoraði sitt fyrsta mark fyrir Adriano
Lið KF Adriano mætti hálf hrokafullt til leiks og byrjaði leikinn ekki af miklum krafti. Ingdólgur hélt þó uppteknum hætti og skoraði úr fyrsta færi leiksins með föstu skoti eftir sendingu hjálmsins. Bumban jafnaði leikinn með ljótu marki stuttu seinna. Bjarni fékk svo gullið tækifæri að koma Adriano mönnum yfir þegar hann komst einn í gegn en Bjarnabomban fór beint á markmanninn Haukur rokkstjarna mætti auðvitað of seint í leikinn en eftir að hann kom inná byrjuðu hlutirnir að gerast, og leikmenn Adriano byrjuðu að trixza sig almennilega í gang. Haukur skoraði svo fallegt pot mark, þar sem hann stýrði skoti lafsins í markið. Svo gerðust undur og stórmerki, Hjálmurinn sem hefur ekki skorað í háa herrans tíð skoraði gullfallegt mark eftir fallegan undirbúnings Lafsins. Ploder skoraði svo sitt annað mark eftir fallega stungu frá Hjálmi. Staðan 4-1 í hálfleik í frekar slöppum hálfleik af KF Adriano hálfu. Í byrjun seinnihálfleiks skoraði Hlynur sitt fyrsta ónauðsynlega mark í sumar eftir fyrirgjöf Ploders, og tók gríðarlega fallegt Miami Hurricanes fagn Ploder skoraði svo 6 mark Adriano eftir að hafa unnið boltann, eftir klaufagang í vörn Bumbunar. Á þessum tímapunkti leiksins var Ingdólgur að sýna listir sínar með boltann og gerði meðalannars gullfallegt Ronaldinho trix. Ingdólgur var heitur eins og ljón og skoraði fallegasta mark leiksins þegar hann tók boltann á kassann eftir fyrirgjöf frá Ploder og sneiddann í hægra hornið. Rétt fyrir leikslok fengu leikmenn Bumbunar aukaspyrnu og Helgi markmaður nennti ekki að stilla varnarvegginum rétt upp og þeir skoruðu með lausu skoti í nær hornið. Strax eftir markið fékk Sverrir boltann upp við teginn og átti gullfallega sendingu á Störe sem sleggjaði honum með vinstri og gerði gat á markið. Lokastaðan 8-2 fyrir KF Adriano sem sittur sem fyrr á toppnum með fullt hús stiga
Byrjunarlið
Helgi GK 7 Varði ágætlega á köflum
Bjarni DC 7 Skoraði sitt fyrsta mark fyrir Adriano, og var óheppinn að skora ekki 2
Brilli DC 7 Vann boltann dáldið oft
Hlynur MC 7 Var ekki eins mikil herforingi og undanfarið
Villi MR 7 Náði loksins að skora
Sverrir 7 Var ógnandi í seinnihálfleik
Ingó FC 8 Sýndi listir sínar, hefði átt að skora fleiri mörk
Bekkurinn
Óli DC 7 Lagði upp tvö mörk
Ploder ML 8 MOM Skoraði 3 ljót mörk
Einar MR 7 Hefði mátt reyna að klobba leikmenn oftar
Sindri FC 7 Barðist eins og Kuyt
»
19.07.2011 15:10:04 / Adriano
2px 2px 8px; box-shadow: rgba(0, 0, 0, 0.64843 2px 2px 8px; " />Dólgurinn kann bæði að skora og pósa
Leikmenn Kattanna mættu ákveðnir til leiks og grimmir í tæklingarnar, og var ljóst strax frá fyrstu mínútu að þetta yrði alvöru leikur. Fyrstu mínúturnar voru stál í stál en þegar leið á leikinn að Adriano vélinn byrjaði að malla. Fyrsta mark leiksins skoraði svo Ingdólgur með föstu vinstri fótarskoti í fjærhornið eftir fallega sendingu frá Plodernum. Stuttu seinna fékk Hlynzi B frábært færi eftir að Dólgurinn vann boltann af harðfylgji og sendi boltann á Hlynza, sem skaut framhjá einn á móti markmanni. Hlynur fékk svo annað færi eftir gott samspil við lafinn og setti þá boltann auðveldlega í netið, og tók frábært owling fagn. Í seinni hálfleik færðu Kettirnir sig framar á völlinn og fengu 2 gefins færi frá leikmönnum Adriano, Sverrir átti eina gullfallega hælsendingu inn fyrir vörn Adriano á einn kött, og Jói gaf líka eina fallega sendingu beint á kött, en þeim brást bogalistinn í bæði skiptinn. Með innkomu Sverris í leikinn kom meiri harka í leikinn og létu bæði lið tæklingarnar fljúga um allan völl. Villi var svo kominn með nóg af þessari vitleysu og sólaði upp allan völlinn og klobbaði einn og skíðaði framúr tveimur sendi boltann svo á Dólginn sem átti ekki í miklum vandræðum með að setja boltann í mark Kattanna. Eftir markið gerðist lítið marktækt og dómari leiksins flautaði leikinn af og 3-0 sigur og sigurvélinn heldur áfram að malla.
Byrjunarlið
Helgi GK 7 Clean sheet, hafði ekki mikið að fera
Brilli DC 8 Finnst greinilega kettir góðir á bragðið, var allavega að éta þá í drasl
Óli DC 7 Lagði upp gott mark, nokkrar óþarfa kýlingar
Hlynur MC 7 Klúðraði rosalegu færi, skoraði 1
Villi ML 7 Skilaði góðri varnarvinnu, lagði upp flott mark
Ploder MR 7 Lagði upp mark, fékk að finna fyrir Kattarhörkunni
Ingó FC 9 MOM Skoraði 2 og bjó til mark handa Hlynza sem Hlynzi klúðraði
Bekkurinn Sverrir ML 6 Var í hörkunni
Bjarni DC 7 Solid
Sindri MR 7 Vantaði grimmd uppvið markið
Jói DC 6 Heppinn að gefa ekki mark
»
24.06.2011 22:20:13 / Adriano
Ploder var flottur, en Elsa lét ekki sjá sig 
Eftir 2 vikna EM frí mættu ákveðnir Adriano menn til leiks á Ghettó ground. Svo mikil alvara var í gangi að meira segja var tekinn alvöru upphitun fyrir leikinn. Leikmenn Adriano byrjuðu leikinn af krafti, fengu mörg hálffæri og vantaði herslumuninn að boltinn færi inn fyrir línuna í nokkur skipti. Leikmenn FC Premier skoruðu svo úr sinni fyrstu sókn, þvert gegn gangi leiksins, ljót mark. Leikmenn KF Adriano héltu þó sínu spili áfram og voru fljótir að jafna, en það var KFC kóngurinn Hlynzi B, vann boltann af sköllótta gaurnum og kláraði færið frábærlega, skaut beint á markmanninn og hirti frákasti. Tomi Ingdólgur Ameobi kom svo Adriano yfir þegar hann fygldi eftir skoti Ploder. Ingdólgur var svo fljótur að þakka ploder fyrir sig og lagði upp fyrir hann fínt færi sem ploder kláraði með vinstri fæti stöngin inn. Staðan 3-1 í hálfleik og yfirburðir Adriano miklir Í seinni hálfleik pressuðu leikmenn Premier töluvert ofarlega og varð leikurinn því töluvert opnari, leikmenn Premier áttu nokkur hálfæri í stöðunni 3-1 en það voru leikmenn Adriano sem bætu við, eftir hornspyrnu hjá premier barst boltinn til Ploder sem gaf boltann innfyrir á Lafinn sem átti sendingu á fjær á Ploder aftur sem kom með fyrir gjöf á Ingó sem potaði boltanum í netið. Nú var kominn tími á hlynza B sem skoraði plataði markmanninn sem hélt hann ætlaði að gefa fyrir þegar hann potaði boltanum í autt markið, eftir sendingu frá lafnum 5-1. Á þessu tímapunkti átt 3 grjótharðar tæklingar dagsins ljós, Hlynzi B með eina breskaá sköllótta gaurinn sem Hlynzi borðaði í leiknum, Sverrir Falur með eina Scholes tæklingu eins og honum einum er lagið, og svo átti Espersen eina breiðholska og fengu þeir allir að líta gula spjaldið Þegar staðan var 5-1 komu tilburðir leiksins, Ingdólgur átti þá frábæra vippu á Sverri sem reyndi að klippaboltann Lorent Robert style en boltinn fór rétt framhjá. Þá refsuðu leikmenn FC Premier eftir mistök hjá Einari. Einar var staðráðinn í að bæta fyrir mistökinni og átti eina Roberto Carlos sleggju upp í skeytin eftir sendingu frá dólgnum. Dólgurinn var ekki hættur að leggja upp á félagana og átti rosalega hælsendingu á breiðholtsdrenginn Espersen sem bragst bogalistinn á móti sköllóttum markmanni gestanna. Sindri Jónsson var svo færður upp á topp til að refsa, Brilli átti þá sendingu á Sverri sem lét boltan fara undir klofið á sér og til Sindra, Sindri setur boltan á hægri fótin á setur hann í netið af þvílíkri yfirvegun, 7-2.
Byrjunarlið
Helgi GK 7 Varði oft vel, átti samt enga sjónvarps í kvöld
Einar DC 6 Tapaði boltanum illa í báðum mörkunum, átti flotann screamer
Óli DC 8 Var ekki jafn eigingjarn og í seinustu leikjum
Hlynur MC 8 Skorar bara mikilvæg mörk, lét vippa yfir sig
Vilhjálmur MR 7 Hefur oft verið meira skapandi
Haukur ML 9 MOM Var gríðarlega creative og var að triksa Premier í drasl
Alex FC 7 Hefði átt að skora eftir sendingu dólgsins
Bekkurinn
Ingó FC 8 Skoraði tvo og lagði upp 2
Davíð DC 6 Var ágætur
Sverrir ML 7 flott "dummy" í markinu hans Sindra
Sindri FC 7 Er að refsa bæði innan og utan vallar
Brilli DC 7 Var Solid, lagði upp mark
»
09.06.2011 12:16:33 / Adriano
 The Situation við tökur í London.
Sindri „The Situation“ Jónsson átti stórleik þegar KF Adriano mætti FC Miroslav í ágætis rokleik 5.umferðar Carlsberg deildarinnar.
Fyrir leikinn hafði verið nokkuð fjallað um endurkomu Ingdólgs, enn hann var nýkominn úr fyllerísferð með blak landsliði Íslandi og því verið fjarverandi síðastu vikur. Einnig var fjallað um brotthvarf Andra Más, enn sögur segja að hann hafi klárað sig útileigu og sé orkulaus.
KF Adriano byrjuðu leikinn af krafti og var fyrsta mark leiksins ekki lengi að líta dagsins ljós. Bræðurnir Brilli og Villi áttu gott samspil sem endaði með fyrirgjöf á Ingdólginn, varnarmenn Miroslav voru ekki lengi að brjóta á honum inní teig og fengu Adriano menn því víti. Fyrirliðinn hann Alkohólafur steig upp, fór á punktinn og skoraði af miklu öryggi. Næstu 10 mínútur einkenndust af gríðarlegri yfirvegun Adriano manna. Þeir stjórnuðu spilinu og lágu mjög framarlega á vellinum. Það kom tímabil sem Adriano spilaði 1 - 3 - 1- 1, enda lafurinn orðinn hungraður í fleiri mörk og var kominn í holuna fyrir aftan Ingólf. Kf Adriano voru óheppnir að skora ekki nokkur mörk á þessum 10 mínútum. Varnarmenn Miroslav hættu ekki að brjóta á Dólgnum og fengum Adriano menn hættuelga aukaspyrnu rétt fyrir utan teig. Ploderinn tók hana enn var óheppinn að skora ekki.
Annað mark leiksins kom svo á 15 mínútu eftir ágætis sprett frá Villa sem sendir á Plolla og hann gefur drauma stungusendingu á Dólginn sem klárar færið vel. Staðan því 2-0 fyrir KF Adriano.
Miklar vangaveltur voru gerðar þegar Hlynza B var skipt útaf fyrir Sverri og Villi færður á miðjuna, enn hann Hlynzi B hefur gegnt lykilhlutverki á miðjunni á þessu tímabili og stjórnað henni eins og Colonel Sanders. Í kjölfari þessarar skiptingar fengu Adriano menn á sig skíta mark sem einkenndist af leti og samskiptaleysi miðjumanns og varnarmanna.
Rétt undir lok fyrri hálfleiks var Sindra Situation skipt inná til að hlaða stjörnukraftinn, enn hann átti eftir að gegna lykilhlutverki í seinni hálfleik.
Seinni hálfleikur byrjaði ágætlega og fengu Adriano menn nokkur færi. Marka græðgi Lafsins skein í gegn þegar hann reyndi að sleggja botlanum með tánni af 30 metra færi, en boltinn endaði uppá húsþaki. FC Miroslav fengu 2-3 hættuleg færi, enn þeim tókst ekki að jafna.
þriðja og síðasta mark leiksins kom eftir skyndisókn Kf Adriano manna, Espersen átti assist of the week, með frábærri hælsendingu á The Situation sem tekur á móti boltanum og skorar sitt fyrsta deildarmark fyrir KF Adriano. Fagnaðarlætin voru af dýrari gerðinni, enn hann Sindri Situation hljóp fagnandi um á gerivörtunum og þóttist sprauta mjólk á áhorfendur. The Situation fékk svo heiðursskiptingu nokkrum mínútum eftir markið sitt, enda stjörnukrafturinn á skornum skammti eftir markið og fagnaðarlætin.
Lokastaða 3 - 1 fyrir Kf Adriano.
Til gamans má geta að Espersen verður fjarverandi í viku, enn hann er að fara til Spánar í æfingabúðir hjá Adriano og mun koma sterkari til baka með fleiri trix‘n‘skillz.
Áhorfendur: 2 Maður leiksins: Sindri “The Situation” Jónsson Aðstæður: 5 stiga hiti, skýjað og vindur á annað markið. Dómari: Andre B.
Byrjunarlið
Helgi GK - 7 Fékk nokkur skot á sig, varði vel og var óheppinn í markinu sem hann fékk á sig.
Brilli DC 7 Var solid, vantar meiri talanda.
Óli DC 7 Var líka solid, má vera fljótari að koma boltanum í spil þegar hann er aftarlega á vellinum. vantar líka talanda.
Hlynur MC 8 Stjórnaði spilinu á miðjunni mjög vel.
Villi MR 6 átti þátt í fyrstu tveim mörkum KF Adriano, átti líka þátt í markinu sem þeir fengu á sig.
Haukur ML 6 Átti ekki sinn besta leik og heldur ekki sinn versta, virkaði þreyttur.
Ingólfur FC 8 Var mjög góður og gerði vel í fyrstu tveim mörkunum.
Bekkurinn
Jói DC 6 sást voða lítið í leiknum.
Sindri MR 9 MOM skoraði sitt fyrsta mark fyrir KF Adriano og kláraði leikinn.
Sverrir ML 6 Sást ekki mikið, átti það til að týnast á kantinum.
Alex Espersen MR/FC 7 Gerði vel í markinu hans Sindra, átti assist of the week.
»
24.05.2011 23:36:15 / Adriano
 Hlynur setti 2 og var öflugur.
Næst stærsti derby-leikur ársins, og leikmenn KF Adriano staðráðnir í hefnd síðan í leiknum 2009. Leikmenn Sveinþórs voru þó án sín besta leikmanns Kem Karl Torres La Um. Sveinþór voru með skemmtilega dagsskipan, pakka í vörn og negla fram, svo var Óli J settur á vinstri kanntinn til að sparka í Villa. Liðsmenn KF Adriano voru þó þolinmóðir og eftir að hafa náð að teima lið Sveinþór framarlega á völlinn skoruðu leikmenn Adriano eftir snögga sókn, Villi fær boltan aftarlega á vellinum keyrir fram, sólar tvo þríhyrningaspil við Dabba, sendir fyrir á Hlyn sem skorar auðveldlega. Hjálmur fékk svo boltann stuttu seinna klobbaði einn og lagði boltan á Hlyn sem dúndraði honum í markið staðan 2-0. Villi var ekki hættur að leggja upp á félaga sína og átti fallega sendingu á Andra sem klippti boltan á lofti en boltinn fór rétt yfir markið. Töluvert gegn gangi leiksins skoruðu leikmenn Sveinþór, áttu skot utan af velli sem fór í stöngina en náðu frákastinu og lögðu boltan í netið. Leikmenn Adriano fengu svo aukaspyrnu rétt fyrir utan teginn, Villi tekur hana, og skýtur en varnarmaður Sveinþórs ver hana, notaði þó greinilega hendina til þess, ekkert dæmt. Staðan 2-1 í hálfleik. Leikmenn Adriano spiluðu seinni hálfleikin af skynsemi og héldu boltanum vel. Sveirrir áttir gullfallega Özil utanfótarsendingu á Andra Adebayor sem klippti boltan á lofti en boltinn fór á mitt markið. Villi átti svo í millitíðinni aukaspyrnu sem markmaðurinn varði. Andri Már kláraði svo leikinn þegar hann vann boltan af markmanninum og skoraði í autt markið, týpískt Andra mark. Leikmenn Adriano fengu nokkur færi til að setja 4 markið en náðu ekki að nýta þau en 3-1 sigur staðreynd og 3 stig í hús, sem er ennþá fullt.
Byrjunarlið
Runi "Solli" GK 7 Fékk fá skot á sig, en fékk stundum að vera með í spilinu
Brilli DC 8 Átti mjög góðan leik í hjarta varnarinnar
Óli DC 8 Vippaði yfir Óla J við mikinn fögnuð áhorfenda
Hlynur MC 8 MOM Skoraði 2 mörk og fann sig vel í spilinu
Villi MR 8 Lagði upp tvo
Alex ML 7 Solid
Davíð FC 7 Flottur Target-senter, þarf að rifja upp trixin
Bekkurinn
Andri FC 7 Skoraði 1 og var óheppinn að skora ekki fleiri, reyndi flottar klippur
Sindri MR 7 Hataði ekki návígin
Sverrir ML 7 Átti eina beuty sendingu
»
16.05.2011 22:35:22 / Adriano
Alex er núna búinn að vera tvisvar maður leiksins af fjórum leikjum sem búnir eru á tímabilinu.
Leikmenn Adriano mættu til leiks fullir sjálfstraust með fullt hús stiga og staðráðnir í 3 stig. Leikurinn byrjaði þó ekki vel og eftir slaka byrjun skoruðu leikmenn Jaga eftir hornspyrnu. Þá henti Tony Pulis (Hlynur) derhúfunni af sér og klæddi sig í fótboltaskó. Hann var ekki búinn að vera lengi inná þegar hann lagði upp fyrsta markið á Einar Brynjarson sem lagði boltan auðveldlega í netið eftir flotta fyrirgjöf Hlyns. Hlynur átti svo nokkrar gullfallegar Riise fyrirgjafir og ein slík endaði beinustu leið í markinu. Staðan 2-1 í leikhléi og Adriano menn ekki búnir að eiga sinn besta leik. Villi ákvað svo að fara í skíðaskóna í seinnihálfleik og eftir smá svig átti hann frábært langskot í stöngina inn. Villi ákvað svo að gera leikinn spennandi og gaf einum leikmanni Jaga boltann á slæmum stað og þeir skoruðu. 3-2 Þá kom eitt sveitasta danska combó mark sem sést hefur. Eftir upphlaup Lafsins úr vörninni átti hann sendingu á Espersen sem skoraði boltan, minnti þetta samspil danana dáldið á Laudrup bræðurna. Espersen var ekki hættur og eftir fallega skyndisókn átti hann skot sem var varið, boltinn barðist til Villa sem lagði boltann á Lexa sem skoraði. Brilli kom svo inná og skoraði gullfallegt sjálfsmark eftir hornspyrnu Svo rétt í lokinn komst Einar inní sendingu frá markmanni Jaga spólaði sig í gegnum vörnina og skoraði. Lokastaðan 6-3
Byrjunarliðið
Helgi GK 7 Átti eina sóðalega vörslu
Brilli DC 6 Átti ágætan leik en skoraði klaufalegt sjálfsmark
Bjarni DC 6 Solid
Einar MC 7 Kom liðinu á bragðið og endaði leikinn með gourme marki
Villi MR 6 Skoraði 1, lagði upp 2 og gaf 1. Hefur samt oft átt betri leik
Sverrir ML 6 Fanney er of góð við hann, vantar alla greddu í hann
Andri FC 5 Ógnaði ekkert
Bekkurinn
Hlynur MC 8 Steig upp þegar aðrir voru á hælunum
Óli DC 7 Lagði upp gott mark
Alex ML 8 MOM Dansk Smørrebrød
Sindri MR 6 Fann ekki stjörnukraftinn
»
15.05.2011 22:46:56 / Adriano
 Brill átti góðan leik
Fyrsti og seinasti bikarleikur sumarsins fór fjörlega af stað. Hlynur Magnússon þjálfari Adriano skartaði gull fallegu Tony Pulis look-i, og var nokkuð margt um öskrandi smápíur í kringum hann. Eftir laglegan sprett hjá hjálminum átti hann skot í stöng-stöng út, og á einhvern ótrúlegan hátt náði Espersen ekki að fylgja eftir og ýta boltanum yfir línuna. Þá var komið af Dabba Daníelsyni að búa til hluti, eftir frábært þríhyrninga spil við hjálminn tók hjálmur-inn skæri, klobbaði mann og skoraði með föstu skoti í horni, frábærlega gert hjá Dabba. Eftir markið fóru leikmenn Barbara að pressa okkur hærra á vellinum og náðu að brjóta upp uppbyggingarspil Adriano. Rétt fyrir leikhlé skoruðu þeir svo 2 mörk með stuttu millibili. Í seinnihálfleik bökkuðu leikmenn Barbara aftur og gekk illa fyrir Adriano menn að finna gljúfur á vörninnni. Rétt fyrir leikslok fékk Espersen boltan og átti þessa þvílíku Laurent Robert sendingu á Hjálminn sem potaði boltanum yfir línuna. Leikmenn Barbara tóku miðju og skoruðu ljótt mark, lokastaðan 2-3 tap
Byrjunarlið
Helgi GK 7 Átti eina sóðalega sjónvarpsmarkvæslu
Óli DC 7 Hafði lítið að gera vegna skrímslham Brilla
Brilli DC 8 MOM Var í Charizard mode
Einar MC 7 Kynþokkafulur á velli, hefði mátt vera meira skapandi
Villi MR 8 Skoraði tvo og fannst gaman að gera skíðatrixið sitt
Alex ML 6 Lagði upp jöfnunarmarkið, klúðarði þvílíkum deddara
Dabbi FC 7 Frábær target man, stóð sig vel í batahlutverki og þreyfði spilinum Hosham Ghali style um allan völl
Bekkur
Jói DC 5 Spilaði lítið en liðið fékk á sig tvo mörk í hans innkomu
Sindri MR 6 Komst ekki í takt við leikinn
Sverrir ML 6 Solid
»
09.05.2011 15:06:34 / Adriano
Andri skoraði 2 á meðan Bacon var í Andorra að leika með landsliði Íslands í blaki. Það var í blíðskaparveðri fimmtudaginn 5.maí sem KF Adriano og Börn í vörn mættust í 2.umferð Carlsberg-deildarinnar. Töluverður vinskapur er á milli félagana og því var um hálfgerðan derby leik að ræða, þó svo að lítill hiti hafi verið í mönnum. Liðin áttu ólíku gengi að fagna í 1.umferð, KF Adriano vann 11-1 sigur en Börn í vörn töpuðu 11-1.
Leikurinn byrjaði nokkuð jafnt en eftir nokkrar mínútur náðu KF Adriano öllum undirtökum á vellinum á meðan Börnin lágu til baka og gáfu fá færi á sér. Þannig hélst það út hálfleikinn sem var mjög tíðindalítill þar sem sóknarleikur KF Adriano var ekki nógu hraður til þess að finna nein göt á vörn Barnanna í vörninni. Börnin fengu nokkur ágætis færi úr skyndisóknum en komust ekki nálægt því að skora nema í eitt skipti en þá varði Helgi vel. Í síðari hálfleik mættu Börnin sókndjarfari til leiks og við það opnaðist leikurinn heilmikið. Ekki þurftu þeir 3 áhorfendur leiksins að bíða lengi eftir marki hjá KF Adriano en þá fékk liðið aukaspyrnu alveg við vítateigslínuna sem Haukur gaf á Hlyn sem stóð einn og óvaldaður vinstra megin í vítateignum sem kláraði færið snyrtilega í nærhornið. Stuttu seinna átti Vilhjálmur gott hlaup upp vinstri kantinn og var kominn einn í gegn þegar hann missir boltann eilítið frá sér, án þess þó að vera ekki með hann þegar Andri Már stingur tánni í hann og setur hann með vinstri niðrí í vinstra hornið. Snyrtilega gert hjá honum, en ef hann hefði klúðrað er ljóst að menn hefðu ekki verið par sáttir með þessa framgöngu hans.
Þegar þarna er komið við sögu fara Börn í vörn að pressa meira sem liðsmenn KF Adriano tekst ekki að vinna rétt úr, ekki er næg yfirvegun á mönnum og leikmenn virðast helst vilja keyra yfir andstæðinginn í stað þess að halda áfram að spila skynsamlega eins og leikur liðsins hafði borið merki um í leiknum. Andstæðingurinn nær að jafna með 2 laglegum mörkum frá Indriða og Danna. Eftir nokkrar vangaveltur voru þjálfari og yfirmaður knattspyrnumála búnir að komast að niðurstöðu hvað væri rétt að gera til að sigra leikinn en þá skyndilega er Davíð kominn í gott færi, leggur hann óeigingjarnt til hliðar á Hauk sem leggur boltann í autt markið. Þær breytingar sem ákveðnar höfðu verið voru þó framkvæmdar og stuttu seinna skorar Andri Már sitt annað mark á yfirvegaðan hátt. Lítið var eftir af leiknum og góður sigur í höfn. Þetta var mögulega í fyrsta skipti sem okkur tekst að sigra leik eftir að hafa misst niður forystu.
Einkunnagjöf: Helgi - 7 - Leikurinn var í rólegri kantinum hjá honum, varði einu sinni mjög vel og gat lítið gert í mörkunum. Óli - 5 - Skilaði sínu varnarleik sínum sæmilega en missti boltann alltof oft, eitthvað sem hann gerir sér fyllilega grein fyrir og mun vonandi bæta úr. Brynjar - 6 - Ágætis leikur hjá honum en spil liðsins gekk full hægt fyrir sig þegar hann og Ólafur voru saman í vörninni. Hlynur - 7 - Komst ekki nægjanlega vel í takt við leikinn í fyrri hálfleik og spilaði lítið í honum. Mun betri seinni hálfleikur, skoraði mark og var mjög nálægt því að skora 2 glæsimörk til viðbótar. Alex- 6 - Hefur greinilega ofmetnast við fyrsta leikinn sinn. Mætti með gullkeðjur og ungar stúlkur með sér og virtist ekki alveg vera með það á hreinu hvort hann vildi þær eða sigurinn meira. Haukur - 7 - Ávallt sprækur, skoraði og lagði upp mark en virtist verða pirraður þegar erfiðlega gekk á kafla í seinni hálfleik. Vilhjálmur - 7 - Átti mörg góð hlaup og skapaði hættu með þeim. Lagði upp annað markið þó svo að það hafi verið ætlunin hjá honum að skora sjálfur. Andri Már - 8 - Skoraði 2 mörk með vinstri. Er af deyjandi kynslóð hreinræktaðra markaskorara. MOM Bjarni - 8 - Sterkur, einbeittur og skilaði boltanum vel frá sér. Hefði verið maður leiksins ef hann hefði skilað Bjarnabombunni sem hann lofaði fyrir leik. Davíð - 6 - Var í strangri gæslu varnarmanna í fyrri hálfleik en lék betur í þeim seinni og gerði vel þegar hann lagði upp markið fyrir Hauk. Sverrir - 6 - Spilaði vel.
»
28.04.2011 00:21:43 / Adriano
Þessir þrír áttu flottan leik og þá aðalega Daninn með svitabletinn
Fyrsti leikur sumarins og leikmenn KF Adriano staðráðnir í að ná í 3 punkta. Binni Hlö var valla búinn að flauta leikinn á þegar Ploder skoraði fyrsta markið. Bjarni hafði þá átt frábæran skalla á Ploder sem sólaði 7 leikmenn og setti boltan svo auðveldlega í markið. Mark númer 2 kom eftir gott spil Andra og Ploders sem endaði með öðru marki Ploders. Þjálfara Adriano fannst vanta smá gæði og setti tæknitröllið Davíð og gæðastjórann Ingólf inná. Davíð var ekki lengi að eiga eitt stykki Xavi sendingu á Dólgurinn sem setti boltann auðveldlega í netið. Ingó setti svo annað mark strax aftur, nú eftir sendingu frá Ploder. Staðan var 4-0 í hálfleik. Í byrjun seinnihálfleiks var Óla farið að leiðast í vörninni og tók skeiðið fram og potaði inn einn eftir sendingu Ploders. Fallegasta mark leikist leit dagsins ljós svo næst þegar Alex Carroll skoraði glæsilegt skallmark þegar hann fygldi eftir skoti Andra Más. Næsta mark kom eftir gott hlaup frá Sverri sem stakk boltanum á DD sem þrumaði boltanum í netið. Davíð átti svo gullfallega sendingu á Ingó sem komst einn í gegn sólaði markmannin og rendi boltanum í autt netið 8-0. Daði Ingólfsson potaði svo inn einu ljótu marki fyrir Bumba 8-1 Þá gerðu Adriano menn 3 falda skiptinu og settu Alex, Andra og Hjálmin inna. Daninn byrjaði á því að pota einu inn, og lagði svo upp annað fyrir Andra. Hjálmur negldi svo seinasta naglann í líkkistu Bumba með skoti í stöngina inn eftir gott samspil við Lafinn. Lokatölur 11-1 í fyrsta leik sumarsins
Byrjunarlið GK- Helgi 7 Rólegur leikur DC Bjarni 7 Átti stóran þátt í fyrsta markinu, hefði átt að skora með flugskalla DC Brilli 7 Var Brilliant MC Ploder 8 Skoraði 2 og lagði upp 2 MR Villi 7 Hjálmurinn var sparkaður niður í dag ML Sverrir 7 Var eins og Quaresma FC Andri 7 Skoraði mark og lagði upp 2
Bekkurinn FC Ingó 8 Fyrsta þrennan af mörgum í ár MR Davíð 7 Hann og Ingó myntu dáldið á Dwight yorke og Andy Cole ML Alex 9 MOM Daninn fljúgandi fór langt með að tryggja sér treyju númer 52 fyrir sumarið DC Óli 7 Var klobbaður 1 sinni.
»
25.08.2010 22:33:07 / Adriano
Í ljósi þó nokkurar óánægju með það að hafa lokahófið núna um helgina vil ég að menn tjái sig hér að neðan um það hvenær þeir vilja hafa lokahófið. Ég held að það sé mestur áhugi fyrir því að hafa þetta á laugardegi en það er auðvitað allt opið í þeim málum.
Væntanlega erum við að tala um fyrstu 3 helgarnar í september, hvenær vilja menn helst hafa þetta og hvaða kvöld komist þið alls ekki?
Endilega koma með hugmyndir af staðsetningu, sérstaklega ef þið vitið um einhvern ódýran og skemmtilegan stað.
»
22.08.2010 21:52:27 / Adriano
Adriano-menn voru komnir með bakið upp að vegg fyrir síðasta leik riðilsins gegn sterku liði Hvatbera. Ljóst var að liðið þyrfti að sigra, helst með nokkrum mörkum auk þess að treysta á úrslit úr leik Grettis og Ljónsunga sem fram fór á sama tíma. KF Adriano var því fljótlega orðið mun sterkara liðið á vellinum og það voru ekki liðnar 10 mínútur þegar við höfðum tekið forystuna. Haukur Ploder hékk þá á boltanum og hafði úr litlu að moða þangað til Hlynur bauð sig upp við endalínu, Haukur lagði boltann á hann. Hlynur kom auga á Vilhjálm á fjærstönginni og undarlega staðsettan markmann og gaf boltann því fyrir, milli markmanns og marksins og varði sá Þykki boltann glæsilega í netið. Stuttu seinna átti Haukur nokkrar vel heppnaðar tæklingar á einn heltanað vöðvabúnt í hinu liðinu sem tók létt sterkast á hann og hrinti honum en dómarinn ákvað að refsa honum ekki fyrir það, en þjálfari Hvatbera ákvað að taka hann útaf svo hann gæti kælt sig niður. Örfáum mínútum seinna átti Haukur sendingu á Villa sem var ekkert að tvínóna við hlutina og smellti boltanum hnitmiðað en þéttingsfast niðrí nær hornið, rétt fyrir utan teiginn, fallegt mark þar á ferð. Hvatberar stigu upp eftir þetta og nokkuð jafnræði var með liðunum það sem eftir lifði fyrri hálfleiks.
Þrátt fyrir að hafa rætt um það í hálfleik að leyfa Hvatberum ekki að komast inn í leikinn vitandi það að þeir myndu mæta dýrvitlausir inn í seinni hálfleikinn tókst okkur ekki að koma í veg fyrir það og var staðan orðin 2-2 áður en að 10 mínútur voru liðnar af seinni hálfleiknum. Eftir það jókst baráttan í leiknum mikið og nokkur hiti var í mönnum. Í þannig andrúmslofti þrífst Punglafur best og smellti sér í eitt gott overlap í sóknina, fékk sendingu frá Jónsa inní vítateig Hvatbera og hamraði boltann í hornið og fagnaði ógurlega. Hvatberar pressuðu Adriano eftir þetta og þegar hún var hvað þyngst umbreyttist Ólafur í Jamie Carragher og varð fyrir öllum skottilraunum Hvatbera á 5 mínútna kafla. Knattspyrnufélagið var þó alltaf hættulegt í skyndisóknum sínum. Ein slík hófst þegar Hlynur vann boltann af harðfylgi af steraboltanum sem vældi að hætti hússins og bað um aukaspyrnu en enga fékk hann. Hlynur hins vegar hélt áfram upp völlinn og lagði hann á Jónsa sem klikkaði svo á algjöru dauða-dauða-færi einn gegn markmanninum. Það kom þó ekki að sök því stuttu seinna misheppnaðist hreinsun hjá markmanni Hvatbera sem kominn var út fyrir eigin vítateig, hún fór beint til Ploder sem vippaði boltanum glæsilega yfir markmanninn og innsiglaði góðan 4-2 sigur.
Starting 7: GK: Brynjarsson, Helgi: 9 - Couple of great saves, MOM DC: Brynjarsson, Einar: 7 - Solid in defence but could have been more influential in midfield. DC: Arason, Olafur: 8 -A rock in defence, scored an important goal. MC: Magnusson, Hlynur: 8 - Capped a good performance with a goal. MR: Jonsson, Vilhjalmur: 8 - Scored a great goal and produced an all-around energetic display. ML: Ploder, Haukur: 8 - Produced some neat link-up play and scored with an audicious lob and made 2 assists. FC: Gudmundsson, Jon: 7 - Terrorised the opponents defence throughout but should have scored at least once.
Substitutes: ML: Bjornsson, Sverrir: 7 - End-to-end stuff. DC: Halldorsson, Brynjar: 7 - Started off badly but improved. ML: Espersen, Alex: 7 - Worked hard and got stuck in. MR: Jonsson, Sindri: 7 - Sexy Football. MR: Birgisson, Andri: 7 - Played it simple and did well.
»
03.08.2010 23:12:31 / Adriano
Adriano menn mættu eiturhressir til leiks á þriðjudegi eftir verslunarmannahelgi, margir nýkomnir heim eftir æfingabúðir í Vestmannaeyjum. Þetta var einnig fyrsti leikur stórstjörnunnar Hauks Ploder sem er nýkominn heim eftir að hafa eytt nokkrum mánuðum einhversstaðar í Mið-Ameríku. Leikurinn byrjaði rólega og jafnræði var með liðunum. Snemma leiks átti KFC-skrímslið stórhættulegan skalla eftir hornspyrnu sem var varin naumlega í annað horn. Stuttu seinna átti sami piltur skot utan af velli sem fór naumlega yfir. Annars var mest ógn af liðinu þegar Ploder var í boltanum eins og oft áður og fór hann oft illa með varnarmenn Ljónsungana, sem og Ingdólgurinn sem niðurlægði einn þeirra með einum klassísku 360°snúningi. Ljónsungarnir áttu þó álíka mikið í fyrri hálfleiknum og KF Adriano án þess þó að ógna að nokkru ráði.
KF Adriano mættu mun ákveðnari eftir smá pásu og sóttu án afláts án þess þó að skapa sér opin færi. Það voru helst 2 langskot frá Ólafi sem ógnuðu marki þeirra ásamt fjölda annara skota sem flest enduðu í varnarmúr Ljónsunganna. Pressan var mikil og Andri Már sýndi gamalkunna takta þegar hann klobbaði einn þeirra glæsilega. Harkan í leiknum jókst og leikurinn líktist fótbolta ekki of mikið þegar Ljónsungarnir komust í skyndisókn, boltinn barst fyrir markið þar sem einn þeirra skriðtæklaði boltann og tróð honum milli lappa Óla og undir Helga í markinu. Eftir markið héldu KF Adriano áfram að pressa en lítið gekk og Ljónsungarnir lönduðu 3 stigum í þetta skiptið.
Byrjunarlið KF Adriano: GK - Helgi - 6 Hafði nánast ekkert að gera og var óheppinn að ná ekki að halda hreinu. DC - Óli - 7 - MOM Ógnandi fram á við og spilaði vel. DC - Jói - 7 Solid MC - Hlynur - 7 Komst tvívegis nálægt því að skora og lék vel en endaði þó leikinn ekki vel eftir markið. MR - Villi - 6 Spilaði vel í fyrri hálfleik en hefur oft leikið betur en í þeim síðari ML - Sverrir - 6 Stóð fyrir sínu. FC - Haukur - 7 Var sprækari en menn bjuggust við og sýndi góða takta
Bekkurinn: Sindri - 6 Var duglegur en náði ekki að ógna mikið enda mjög hart tekið á honum. Davíð - 5 Var að missa boltann full mikið en lék þó á tíðum vel. Brynjar -5 Eins og Davíð gaf hann boltann of auðveldlega frá sér og það leit út fyrir að Þjóðhátíðin sæti enn svolítið í honum. Ingó - 6 Sýndi fína takta Andri Már - 5 Er ekki kominn í sitt besta form eftir meiðslin.
»
20.07.2010 23:57:40 / Adriano
  Sindri og Jónsi voru áberandi bestir í kvöld, og Einar var afburðar bestur á Salsakvöldinu. Ferskir og hressir Adriano menn mættu til leiks eftir glæsilegt Salsakvöld sem haldið var um helgina. Leikmenn Puma gleymdu Ívari Guðmundssyni og sást það vel á leik þeirra, þá sérstaklega í fyrri hálfleik. Bæði lið ógnuðu vel í byrjun leiks og færi á báða bóga. Leikmenn Puma vildu meina að boltinn hefði farið inn fyrir línuna eftir skalla eftir hornspyrnu en dómarinn var vel staðsettur á miðjum vellinum og dæmdi ekki mark, enda sparkaði Hjálmurinn boltanum af línunni. Stuttu seinna kom fyrsta markið, Lafur fékk boltann á vinstri kanntinum og átti hnitmiðaða ristarspyrnu það fasta að Hlynsi B þorði ekki að skallaboltan og boltinn endaði í topphorninu fjær og staðan orðinn 1-0. Leikmenn Adriano héldu áfram að ráða lögum og lofum á vellinum. Davíð Beckham tók hornspyrnu hægra meginn, boltinn for beint á Sindra sem notaði yfirsýn sína og senti boltann með síðunni á Jónsa sem læddi boltann niðri í vinstra hornið 2-0. 3 markið kom svo eftir að Jónsi gaf stungu á Hjálminn, sem var illt í vinstra fætinum og ákvað því að gefa á DD sem læddi boltanum í autt markið. Staðan 3-0 í hálfleik. Leikmenn Puma byrja seinni hálfleik að miklu krafti og smá kæruleysi kemur upp í leik Adriano sem fara að tapa boltanum á slæmum stöðum trekk í trekk. Leikmenn Puma ná svo að refsa með 2 eins mörkum í röð. Leikmaður númer 13 sólar 2 á hægri kanntinum kemur með fasta fyrirgjöf á fjær, þar sem Hjálmur er að dekka og boltinn fer inn í bæði skiptin. Leikmenn Puma fara að sækja á fleiri mönnum, en þá vinnur Jónsi boltann keyrir upp völinn og sendir svo á Hlyn sem er ekki í erfiðleikum með að læða boltanum í markið. Rétt fyrir leikslok komstumst leimenn Adriano 3 á móti 2 og Sindri senti boltann á Jónsa sem sleggjaði honum í fjær Þegar staðan var 5-2 hélt Helgi að leikurinn væri búinn og fór úr markinu og þeir læddu boltanum í netið úr miðju 5-3, leikurinn var svo flautaður strax af. Flottur sigur Adriano manna staðreynd og greinlegt að gulubúningarnir eru að gefa, 2 leikir og 2 sigrar. Byrjunarlið Helgi GK 6 Gerði mistök í 3 markinu sem skipti reyndar litlu máli Brilli DC 7 Stóð sig vel, þá sérstaklega í fyrri hálfleik Óli DC 8 Skoraði loksins sitt fyrsta mark fyrir Adriano Hlynur MC 8 Skoraði gríðarlega mikilvægt mark, þegar pressa Puma var sem mest Sverrir ML 7 Duglegur, lagði upp fyrsta markið Villi MR 7 Lagði upp og skoraði sjálfsmark Jónsi FC 9 MOM Skoraði tvo og gerði gríðarlega vel í að leggja upp markið á Hlyn Bekkurinn Sindri ML 8 Lagði upp 2 mörk Dabbi FC 6 Skoraði en átti ekki góðan dag Andri MR 6 Er að koma til baka eftir erfið meiðsli Ingó FC 6 Var með hugann við Greenman
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
Heimsóknir
Í dag: 4 Alls: 27869
|